Von Ráðgjöf - Lausnin Hlaðvarp
"Von Ráðgjöf - er podcast þar sem við hjónin miðlum persónulegri reynslu í bland við faglega af lífinu bæði í blíðu og stríðu vonandi meira í blíðu. Við nálgumst efnið sem sendiboðar sem boða von frekar en einhverskonar rannsóknarfræðimenn sem hafa grandskoðað öll akademísku ritin. Við störfum bæði i Lausninni fjölskyldu- og áfallamiðstöð. Baldur er menntaður Markþjálfi og fyrirtækja markþjálfi og Barbara er með b.ed., gráðu í grunnskólakennarafræðum og Fjölskyldufræðingur Ma-Diplómunám. Samanlagt eiga þau 7/8 börn eftir því hvernig talið er og 2 barnabörn. Útskýrum það nánar í þáttunum. Við vonum að þið hafið gott og gaman af því að hlusta.
Von Ráðgjöf - Lausnin Hlaðvarp
Gleði færni 1 & 2
•
Von ráðgjöf - Það er til betri leið
•
Season 1
•
Episode 28
Í þættinum hefjum við nýtt þema: Gleði
Við skoðum færni 1-17 sem unnin er af Chris Coursey
sem er félagsfræðingur og tengir Gleðina við líffræðina.
Við óskum ykkur svo gleðilegs árs og þökkum fyrir samfylgdina á liðnu ári.
Hlökkum til að takast á við nýtt ár og breiða út boðskapinn.
Færni 1
Að deila Gleði
Færni 2
Að sefa sig
Ef þið viljið bóka viðtal hjá Baldri eða Barböru eða á námskeið Lausnarinnar farið á Lausnin.is