Von Ráðgjöf - Lausnin Hlaðvarp
"Von Ráðgjöf - er podcast þar sem við hjónin miðlum persónulegri reynslu í bland við faglega af lífinu bæði í blíðu og stríðu vonandi meira í blíðu. Við nálgumst efnið sem sendiboðar sem boða von frekar en einhverskonar rannsóknarfræðimenn sem hafa grandskoðað öll akademísku ritin. Við störfum bæði i Lausninni fjölskyldu- og áfallamiðstöð. Baldur er menntaður Markþjálfi og fyrirtækja markþjálfi og Barbara er með b.ed., gráðu í grunnskólakennarafræðum og Fjölskyldufræðingur Ma-Diplómunám. Samanlagt eiga þau 7/8 börn eftir því hvernig talið er og 2 barnabörn. Útskýrum það nánar í þáttunum. Við vonum að þið hafið gott og gaman af því að hlusta.
Von Ráðgjöf - Lausnin Hlaðvarp
32. Gleði færni 10 - 12
•
Von ráðgjöf - Það er til betri leið
•
Season 1
•
Episode 32
Við höldum áfram að tala um gleðina. Við tölum hérna um hversu mikilvægt er að vera með orðlaus samskipti sem eru líkamstjáning okkar og raddblær. Við tölum um mikilvægi þess að láta ekki tilfinningarnar okkar ráða og halda okkur í vanlíðan.
Hvernig við getum haldið okkar auðkenni þrátt fyrir að upplifa slæmar tilfinningar!