Von Ráðgjöf - Lausnin Hlaðvarp
"Von Ráðgjöf - er podcast þar sem við hjónin miðlum persónulegri reynslu í bland við faglega af lífinu bæði í blíðu og stríðu vonandi meira í blíðu. Við nálgumst efnið sem sendiboðar sem boða von frekar en einhverskonar rannsóknarfræðimenn sem hafa grandskoðað öll akademísku ritin. Við störfum bæði i Lausninni fjölskyldu- og áfallamiðstöð. Baldur er menntaður Markþjálfi og fyrirtækja markþjálfi og Barbara er með b.ed., gráðu í grunnskólakennarafræðum og Fjölskyldufræðingur Ma-Diplómunám. Samanlagt eiga þau 7/8 börn eftir því hvernig talið er og 2 barnabörn. Útskýrum það nánar í þáttunum. Við vonum að þið hafið gott og gaman af því að hlusta.
Von Ráðgjöf - Lausnin Hlaðvarp
33. Gleði færni 13 & 14
•
Von ráðgjöf - Það er til betri leið
•
Season 1
•
Episode 33
Við höldum áfram að tala um gleðina og mikilvægi hennar í okkar daglega lífi.
1. Mikilvægi þess að sýna samkennd eða hjartans meðaumkun og sjá hlutina með hjartasýn okkar.
2. Mikilvægi þess að sleppa sjálfshyggjunni sem er andstæða hjartasýnar
Endilega deilið þessu fyrir okkur og njótið :)